Búsforræðisvottorð
Búsforræðisvottorð er vottorð um það að viðkomandi aðili hafi forræði á búi sínu.
Búforræðisvottorð eru gefin út af héraðsdómstólunum. Í þeim tilfellum þar sem bú umsækjanda er til gjaldþrotaskiptameðferðar eða þörf er á nánari upplýsingum, þarf að hafa samband við þann héraðsdómstól þar sem viðkomandi á lögheimili.
Útgáfa vottorðsins kostar 2.500 kr.
Athugið að vottorðið birtist í lokaskrefi umsóknarinnar, ekki í pósthólfi umsækjanda.
Einstaklingar
Félag
Vinsamlegast athugið að ef sótt er um fyrir félag þarf prókúruhafi félagsins að sækja um.
Nálgast má upplýsingar um prókúruskráningu hjá Skattinum.
Þjónustuaðili
Héraðsdómstólar