Bólusetningar - yfirlit
Bólusetning er ónæmisaðgerð sem ætlað er að koma í veg fyrir alvarlegan smitsjúkdóm. Bóluefnin eru ýmist unnin úr heilum, veikluðum eða deyddum sýklum (veirum, bakteríum) eða þau innihalda efni sem finnast í þessum sýklum. Bóluefnin sjálf valda oftast litlum einkennum en kenna varnarkerfi líkamans, ónæmiskerfinu, að þekkja sýkla. Ef ónæmiskerfið þekkir sýkil um leið og hann kemur inn í líkamann bregst það fljótt við til að hreinsa sýkil úr líkamanum. Þannig kemur bólusetning oft alveg í veg fyrir veikindi sem hún beinist gegn en sumar bólusetningar draga úr alvarleika veikinda en hindra þau ekki alveg.
Mikilvægar upplýsingar um bólusetningar
Upplýsingar um bólusetningar fást hjá Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar og Heilsuvera.is
Upplýsingar um eldri bólusetningar en frá árinu 2002 fást á þeim stöðum þar sem bólusetning fór fram. Einnig hægt að senda fyrirspurn á heilsugaeslan@heilsugaeslan.is
Sjúkdómar sem bólusett er fyrir í almennum bólusetningum á Íslandi
(eftir fæðingarárgöngum)Yfirlit yfir almennar bólusetningar á Íslandi
Endurskoðuð, rafræn útgáfa. Júní 2023. Í bæklingnum er m.a. fjallað um bólusetningu einstaklinga með sögu um ófullkomna bólusetningu.Upplýsingar um bólusetningar barna, fyrir foreldra og aðstandendur. Júní 2023
Önnur tungumál:
English - Information about childhood vaccinations for parents and relatives
Polski - Informacje na tematszczepień dzieci dla rodziców i członków rodziny
Español - Información sobre vacunaciones infantiles para padres y familiares
Lietuvių - Informacija apie vaikų skiepijimą tėvams ir šeimos nariams
Myndband fyrir börn um sögu og mikilvægi bólusetninga. Framleitt af Unicef og Krakka RÚV.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis