Fara beint í efnið

Bifreiðastyrkir fyrir hreyfihamlað fólk, blinda og lífeyrisþega

Styrkur vegna kaupa á bíl

Hægt er að sækja um styrk til að kaupa bíl, sem er nauðsynlegur til að stunda vinnu, nám, endurhæfingu eða sækja læknisþjónustu.

Umsækjandi þarf að vera:

  • metinn verulega hreyfihamlaður, til dæmis nota hjólastól eða tvær hækjur að staðaldri,

  • sjúkratryggður á Íslandi.

Styrkir vegna kaupa á bíl

Fjárhæð

Styrkurinn er 2.000.000 krónur.

Fylgigögn

Umsækjandi þarf að skila:

  • hreyfihömlunarvottorði (óþarfi ef hreyfihömlunarmat er þegar í gildi hjá TR),

  • númer ökuskírteinis skráð í umsókn,

  • í einstaka tilfellum óskar TR eftir mati á göngugetu umsækjanda frá sjúkraþjálfara, þú færð bréf á Mínar síður ef svo er.

Eftir að umsókn hefur verið samþykkt þarf að skila afriti af kaupsamningi eða reikningi vegna bílakaupanna þar sem kaupverð á bílnum kemur fram.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun