Fara beint í efnið

STCW Atvinnuskírteini sjómanna á farþega eða flutningaskipum

Umsókn um STCW réttindaskírteini

STCW-skírteini eru alþjóðleg atvinnuskírteini til starfa á farþega- og flutningaskipum í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni. Samgöngustofa gefur út, áritar og heldur skrá yfir atvinnuskírteini sjómanna samkvæmt lögum um áhafnir skipa.

  • Eingöngu lögmætur handhafi skírteinis má gegna því starfi sem skírteinið kveður á um.

  • Skipverji skal ávalt geta framvísað skíteini er hann gegnir stöfum sínum. 

Umsóknarferli og fylgigögn

Þeir sem ætla að sækja um alþjóðleg atvinnuskírteini til að starfa á farþega- og flutningaskipum, þurfa að fylla út rafræna umsókn.

Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn áður en hún er tekin til afgreiðslu:

  1. Gilt læknisvottorð (pdf) frá viðurkenndum sjómannalækni.

  2. Nýleg mynd í vegabréfsstærð - stafræn

  3. Rithandarsýnishorn (pdf).

  4. Staðfesting á greiðslu skírteinis. 

  5. Staðfesting á að hafa lokið tilskildum námskeiðum hjá Slysavarnarskóla sjómanna.

  6. Skjöl um tilskilinn siglingatíma (ef siglingatími er erlendis, þá með sjóferðabók eða vottorði útgerðar).

  7. Afrit af prófskírteini frá skóla (ef sótt er um í fyrsta sinn eftir að námi lýkur).

  8. Afrit af GMDSS; GOC eða ROC skírteini í gildi (aðeins fyrir skipstjórnarmenn).

Gögnin er hægt að senda rafrænt sem fylgiskjöl með umsókninni. Einnig er hægt að senda gögn á netfangið sigling@samgongustofa.is eða í pósti merkt Samgöngustofa, Ármúli 2, 108 Reykjavík. 

Afgreiðsla

Samgöngustofa miðar við að afgreiða skírteini innan 12 virkra daga frá því öll gögn hafa borist. Umsókn er aðeins tekin til afgreiðslu þegar gjald hefur verið greitt. Umsækjendur geta óskað eftir því að fá skírteinið sent í pósti eða sótt það á skrifstofu Samgöngustofu.  

Greiðsla  

Gjald fyrir umsókn um útgáfu og/eða endurnýjun atvinnuskírteina fyrir farþega- og flutningaskip (STCW) fer eftir gjaldskrá Samgöngustofu.

Auknar kröfur vegna breytinga á reglugerðum

Laga og reglugerðastoð

Umsókn um STCW réttindaskírteini

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa