Fara beint í efnið

Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO)

Ísland er aðili að Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) . Alþjóðasiglingamálastofnunin er sérhæfð stofnun Sameinuðu þjóðanna sem ber ábyrgð á öryggi og vernd skipa og vörnum gegn mengun sjávar frá skipum.

  • Sem sérhæfð stofnun Sameinuðu þjóðanna setur IMO alþjóðlegar reglur um siglingaöryggi og umhverfisvernd á sviði alþjóðasiglinga.

  • Meginhlutverk stofnunarinnar er að skapa regluramma fyrir hagsmunaaðila í siglingum.

  • Reglurnar eiga að vera sanngjarnar og skilvirkar og vera lögfestar og framkvæmdar sem víðast.

  • Með öðrum orðum er hlutverk IMO að skapa jöfn samkeppnisskilyrði svo að skipaútgerðir geti ekki tekið á fjárhagslegum vanda með því einfaldlega að fara krókaleiðir og skerða öryggi skipa, vernd þeirra og umhverfisáhrif af rekstri þeirra. Þessi nálgun hvetur einnig til nýsköpunar og skilvirkni.





Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa