Fara beint í efnið

Almennt um lofthæfimál

Eftirlit með lofthæfimálum felst aðallega í úttektum og vottun viðhaldsstöðva loftfara og viðhaldsstjórnun flugrekenda og einkaaðila. Samgöngustofa sér í þessu samhengi um loftfaraskrá sem er lögformlega skráning á eignarhaldi loftfara í eigu íslenskra aðila.

Helstu verkefni varðandi lofthæfimál.

  • Leyfisveitingar og eftirlit með fyrirtækjum sem framkvæma viðhald(Part 145), sem og fyrirtækjum sem stjórna viðhaldi loftfara(CAMO).

  • Tæknilegar úttektir á loftförum.

  • Mat á lofthæfi þ.e. útgáfa og endurnýjun lofthæfivottorða sem staðfestir að loftfar sé lofthæft að uppfylltum ákveðnum kröfum.

  • Mat á menntun, þjálfun og prófum flugvéltækna.

  • Þátttaka í starfi EASA við samræmingu og innleiðingu reglna ásamt ýmsum samskiptum við stofnunina um lofthæfimál og starfsemi leyfishafa.

Netföng lofthæfi og skráningardeildar

 Afskráning loftfara

aircraft.registry@icetra.is

 Lofthæfistaðfestingarvottorð (ARC)

arc@icetra.is

 Hljóðstigsvottorð

noise@icetra.is

Lög og reglur

Reglugerðir Evrópusambandsins

  • nr. 216/2008

  • nr. 748/2012

  • nr. 1321/2014

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa