Fara beint í efnið

Almannatryggingar og búseta erlendis

Nám erlendis

Flestir námsmenn sem dvelja tímabundið í öðru landi flytja ekki lögheimili og halda því tryggingavernd á Íslandi. Undantekningar eru til dæmis námsmenn sem fara til Norðurlanda.

Námsmaður sem á lögheimili á Íslandi og dvelst erlendis við nám er áfram tryggður meðan á námi stendur ef hann er ekki tryggður í almannatryggingum námslandsins.

Taki námsmaður upp fasta búsetu eða launavinnu í námslandinu ber honum að tilkynna slíkt til Þjóðskrár og fellur hann þá ekki lengur undir íslenska tryggingavernd.

Norðurlöndin

Þau sem fara í nám til Danmerkur, Finnlands, Noregs eða Svíþjóðar flytja lögheimili sitt til þess lands sem farið er til. Þau falla undir almannatryggingareglur viðkomandi lands.

Aðstoð er veitt samkvæmt reglum í viðkomandi landi og getur verið breytileg milli landa.

Nám í EES-löndum og Sviss

Námsmenn í Evrópu, utan Norðurlandanna, geta haldið lögheimili sínu hér á landi meðan á námi stendur og þar með rétti sínum til almannatrygginga. Námsmenn þurfa þó að kynna sér vel reglur þess lands sem farið er til.

Námsmenn og fjölskyldur þeirra eiga rétt á læknishjálp þar ef þörf krefur hjá hinu opinbera heilbrigðiskerfi viðkomandi lands í samræmi við EES-reglurnar um almannatryggingar.

Sækja þarf um skattalega heimilisfesti hjá skattinum.

Nám utan EES

Námsmenn sem stunda nám í löndum utan EES og fjölskyldur þeirra geta haldið lögheimili sínu hér á landi meðan á námi stendur og haldið rétti sínum til almannatrygginga.

Sækja þarf um skattalega heimilisfesti hjá skattinum.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun