Fara beint í efnið

Akstursmat

Áður en fullnaðarskírteini er gefið út þarf að óska eftir akstursmati hjá ökukennara.

Ökumaður ræður sjálfur hvaða ökukennari annast aksturmatið fyrir hann og greiðir ökukennaranum fyrir matið samkvæmt gjaldskrá hans.

Hvað er akstursmat

Í akstursmati er kannað hvort mat ökumanns á eigin aksturshæfni, akstursháttum og öryggi í umferðinni sé í samræmi við raunverulega getu hans. Markmið akstursmats er að ökumaðurinn geri sér grein fyrir hæfni sinni og getu í umferðinni með tilliti til umferðaröryggis.

Hvernig fer akstursmat fram

  1. Mat á eigin á aksturshæfni og öryggi í umferð.

  2. Bíltúr með ökukennara. Ökukennari ákveður hluta akstursleiðarinnar og hluta ákveður ökumaðurinn.

  3. Ökumaður leggur mat á eigin akstur, hvað hefði betur mátt fara og hvað gekk vel.

  4. Ökukennari veitir endurgjöf.

Gert er ráð fyrir að akstursmat taki 50 mínútur, þar af aksturinn 30 mínútur og úrvinnsla og niðurstaða 15 mínútur þar sem ökumaðurinn og ökukennarinn ræða hvernig bæta megi öryggi ökumannsins.

Niðurstaða akstursmats

Að akstursmati loknu getur ökukennari staðfest framkvæmdina með rafrænum hætti. Ekki er hægt að falla í akstursmati. Þegar ökukennari hefur staðfest akstursmat getur ökumaður sótt um fullnaðarskírteini.