Sýslumenn: Vottorð
Hvernig nálgast útlendingar sem hafa búið á Íslandi sakavottorð?
Einstaklingar geta sótt um sakavottorð á íslensku en með enskri þýðingu í samræmdu skjali stafrænt: https://island.is/sakavottord
Sakavottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda.
Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferlinu og er gjaldið 2.700 kr. Þegar umsókn hefur verið kláruð eru reikningar og greiðslukvittanir aðgengileg undir Fjármál á Mínum síðum.
Hægt er að mæta á skrifstofu sýslumanns og framvísa persónuskilríkjum til þess að fá sakavottorð.
Ef umsækjandi um sakavottorð hefur hvorki tök á að sækja um sjálfur eða nálgast vottorð sitt getur hann veitt öðrum skriflegt umboð, vottað af tveimur vitundarvottum, til að sækja um það og/eða veita því viðtöku hjá viðkomandi sýslumanni.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?