Fara beint í efnið

Að kaupa inn fyrir opinbera aðila

Ferlið við opinber innkaup miðar að því að ná góðum samningi. Vönduð innkaup fela í sér fjóra meginþætti sem breytast ekki, sama hver kaupin eru.

1. Greining

Kaupandinn gerir innkaupagreiningu og áætlanir. Þá kemur í ljós hvort upphæð verði yfir viðmiðunarfjárhæð eða ekki.

Ef kaupin eru hugsanlega yfir viðmiðunarfjárhæðum er send inn verkbeiðni til Ríkiskaupa, að greiningu lokinni.

Hægt er að senda inn fyrirspurn til Ríkiskaupa til þess að fá aðstoð eða leiðbeiningar við greiningarvinnuna.

Um greiningu

2. Undirbúningur

Kaupandi og Ríkiskaup vinna útboðsgögn í sameiningu. Kaupandi skilar inn lýsingu á því sem þarf að kaupa og Ríkiskaup aðstoða við að skrifa útboðstæknilegan hluta útboðsins.

Um undirbúning

3. Útboð

Tíminn frá því útboð er auglýst og þangað til tilboð er valið. Gera má ráð fyrir að útboðstími sé rúmir tveir mánuðir.

Um útboð

4. Samningsstjórnun

Samningsstjórnun er á ábyrgð kaupandans. Með henni er tryggt að seljandi uppfylli skilyrði samnings.

Um samningsstjórnun


Fyrsta skref: Greining á innkaupum

Þjónustuaðili

Ríkis­kaup

Ríkiskaup

Hafðu samband

Sími: 530 1400

Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is

Afgreiðslu­tími

Alla virka daga frá klukkan 9 til 15.

Heim­il­is­fang

Borgartúni 26, 7. hæð,
105 Reykjavík

Kennitala: 660169-4749