Fara beint í efnið

Sýslumannaráð

Samkvæmt 6. gr. laga nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði tilnefna sýslumenn árlega úr sínum hópi nefnd þriggja manna er hafi það hlutverk:

  • að vinna með ráðuneytinu að stefnumótun fyrir sýslumannsembættin í heild og gera tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum sýslumanna eða löggjöf sem um verkefni þeirra gildir,

  • að vinna að sameiginlegum verkefnum sýslumanna, svo sem útgáfu ársskýrslu fyrir embættin í heild, að vera til ráðgjafar um þróun starfs- og upplýsingakerfa embættanna, að annast sameiginlega vefsíðu embættanna og að stuðla að símenntun og þjálfun starfsmanna þeirra.

  • Nefndinni er heimilt að fela sýslumanni framkvæmd einstakra verkefna undir yfirstjórn hennar.

Nefndin sem nefnd er sýslumannaráð er samkvæmt ákvörðun fundar sýslumanna 22. september 2023, skipuð sem hér segir: 

Kristín Þórðardóttir - sýslumaður á Suðurlandi og settur sýslumaður í Vestmannaeyjum
Birna Ágústsdóttir - sýslumaður á Norðurlandi vestra
Sigríður Kristinsdóttir - sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu

Á fundi sýslumannaráðs 22. september 2023 var skipun ráðsins ákveðin sem hér segir: 

Formaður: Kristín Þórðardóttir
Meðstjórnandi: Birna Ágústsdóttir
Meðstjórnandi: Sigríður Kristinsdóttir

Netfang sýslumannaráðs er syslumannarad@syslumenn.is

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15