Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál

Undirritunardagur

24. október 2024

Útgáfudagur

28. október 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1195/2024

24. október 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, nr. 502/2012.

1. gr.

12. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Að ósk viðkomandi sveitarfélags er eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skylt við útreikning á afkomu og fjárhagsstöðu þess skv. 13. og 14. gr. að undanskilja tekjur, útgjöld, eignir, skuldir og skuldbindingar sem hljótast af eignarhlutum þess í veitu- og orkufyrirtækjum, enda verði það fyrir umtalsvert meiri útgjöldum og/eða beri umtalsvert meiri skuldir en annars væri vegna eignarhlutanna.

Ákvæði 1. mgr. fellur úr gildi 1. janúar 2030.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 64. gr. og 81. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 24. október 2024.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. október 2024

Tengd mál