Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing ytra

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

20. ágúst 2025

Útgáfudagur

3. september 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 946/2025

20. ágúst 2025

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.

Hallstún, L190888, breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 11. júní 2025 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hallstún, L190888. Gerð hefur verið breyting á landnotkun í aðalskipulagi til samræmis við breytinguna. Þær 7 frístundalóðir sem nú eru til staðar haldast óbreyttar. Á syðstu lóðinni (15,9 ha) er gert ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum, í heild samtals um 400 m² með bílskúr og að auki verða byggð landbúnaðartengd hús, svo sem skemma og útihús. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hellu, 20. ágúst 2025.

F.h. Rangárþings ytra,

Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 3. september 2025

Tengd mál