Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Seltjarnarnes

Undirritunardagur

24. janúar 2024

Útgáfudagur

26. janúar 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 73/2024

24. janúar 2024

AUGLÝSING

um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.

1. gr.

Samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011 og orkulögum nr. 58/1967, hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012, er tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

2. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, húshitun 146,49 2,93 165,86 kr./m³
Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu 146,49 2,93 185,28 kr./m³
Einingaverð Sala í þéttbýli, til iðnaðar 146,49 2,93 185,28 kr./m³
Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Fast verð A: 15 mm og stærri 37,07 0,74 41,97 kr./dag

3. gr.

5. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m³ að stærð kr. 372.422
Umframgjald fyrir hús að stærð 300-1.000 m³ kr. 444 pr. m³
Umframgjald fyrir hús að stærð yfir 1.000 m³ kr. 297 pr. m³
1 rennslismælir á grind kr. 117.815

4. gr.

9. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Þjónustugjöld:

Seðilgjald kr. 238
Tilkynningar- og greiðslugjald kr. 90
Auka álestur* kr. 2.760
Innheimtuviðvörun kr. 1.104
Lokunargjald* kr. 8.280
Gjald fyrir opnun utan dagvinnutíma* kr. 20.700
* Virðisaukaskattur reiknast ofan á.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 24. janúar 2024.

F. h. r.

Ólafur Darri Andrason.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2024

Tengd mál