Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Félagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
30. apríl 2026
Útgáfudagur
13. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 483/2026
30. apríl 2026
REGLUR
um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Hafnarfjarðarkaupstað.
1. gr. Lagagrundvöllur.
Reglur þessar eru settar skv. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018. Þá er einnig stuðst við lög um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994, og leiðbeiningar félags- og húsnæðismálaráðuneytis fyrir sveitarfélög um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
2. gr. Markmið og forsendur.
Markmið lögboðinnar akstursþjónustu er að gera notendum þjónustunnar kleift að fara sinna ferða, stunda atvinnu, nám, sækja þjónustu og njóta tómstunda. Að jafnaði er miðað við akstur fyrir fólk 16 ára og eldra.
Forsjáraðilar fatlaðra barna sækja um akstur samkvæmt reglum þessum fyrir börn, t.d. vegna tómstunda, læknisferða, sjúkraþjálfunar eða til að rjúfa félagslega einangrun. Barn yngra en 6 ára skal ávallt vera í fylgd með fullorðnum einstaklingi þegar ferðast er með akstursþjónustu fatlaðs fólks. Þurfi barn bílstól er það á ábyrgð forsjáraðila að útvega hann.
Reglur þessar taka ekki til aksturs leik- og grunnskólabarna til og frá skóla. Um skólaakstur fatlaðra barna fer samkvæmt samkomulagi sveitarfélagsins þar um.
3. gr. Réttur til þjónustu.
Akstursþjónusta er ætluð íbúum Hafnarfjarðar sem geta ekki vegna fötlunar nýtt sér almenningssamgöngur eða keyrt eigin bifreið.
Skilyrði er að fötlun umsækjanda falli að skilgreiningu 2. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og að hann eigi ekki rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum.
Hafi fatlaður einstaklingur átt rétt á að nota akstursþjónustu fatlaðs fólks fyrir 67 ára aldur á hann rétt á þeirri þjónustu eftir að 67 ára aldri er náð að uppfylltum skilyrðum í reglum þessum.
Heimilt að veita tímabundna undanþágu frá framangreindum skilyrðum vegna sérstakra aðstæðna s.s. færðar og alvarlegra veikinda, og skal þá miða við gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldra fólks.
4. gr. Skilgreining á ferðum, fjöldi ferða og þjónustusvæði.
Fjöldi ferða fer eftir samkomulagi umsækjenda og fjölskyldu- og barnamálasviðs.
Ferð er skilgreind sem akstur milli tveggja staða en ekki akstur fram og til baka. Þjónustusvæði er höfuðborgarsvæðið frá Hafnarfirði í suðri og Kjalarnes í norðri.
5. gr. Gjaldtaka.
Gjald fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks miðast við gjaldskrá og er birt á heimasíðu Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Fyrir hverja ferð greiðir farþegi helming af almennu fargjaldi samkvæmt gjaldskrá Strætó bs. þegar ferð er pöntuð með a.m.k. dags fyrirvara, fyrir kl. 16.00 daginn áður.
Fyrir hverja ferð sem pöntuð er samdægurs eða eftir kl. 16.00 daginn áður greiðir farþegi fullt almennt fargjald samkvæmt gjaldskrá Strætó bs.
Hægt er að sækja um tímabilskort fyrir fastar ferðir sem gildir í 12 mánuði.
Þeir sem fá úthlutað akstri á grundvelli samnings við Blindrafélagið greiða gjald í samræmi við það samkomulag, til Blindrafélagsins.
Farþega er heimilt að hafa með sér einn farþega sem greiðir fullt almennt fargjald samkvæmt gjaldskrá Strætó bs. Börn undir sex ára aldri í fylgd með fötluðum foreldrum greiða ekkert gjald. Geti notandi ekki ferðast einsamall getur fjölskyldu- og barnamálasvið samþykkt að notandi greiði ekki fargjald fyrir aðstoðarmann.
6. gr. Umsóknarferli og úthlutanir.
Umsókn um akstursþjónustu er aðgengileg á mínum síðum á www.hafnarfjordur.is.
Í umsókn þarf að koma fram ástæða fyrir umsókn og rökstudd ósk um fjölda ferða. Með umsókn þarf að fylgja rökstuðningur fagaðila.
Umsókn er lögð fyrir deildarfund hjá fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðar að jafnaði sjö dögum eftir að umsókn og tilskilin gögn hafa borist. Starfsmenn sviðsins taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.
Umsækjanda er tilkynnt um niðurstöður umsóknar innan sjö daga frá ákvörðun. Sé umsókn hafnað skal umsækjanda jafnframt kynntur réttur sinn til áfrýjunar til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.
Notanda akstursþjónustu ber að tilkynna fjölskyldu- og barnamálasviði um allar breytingar sem verða á högum hans og snerta veitingu þjónustu samkvæmt reglum þessum.
Umsækjandi getur veitt öðrum skriflegt umboð til að sækja um fyrir sína hönd.
7. gr. Framkvæmd og ferðatilhögun.
Eftir að umsókn hefur verið samþykkt getur umsækjandi haft samband við þjónustuver framkvæmdaraðila sem tekur á móti beiðnum notenda, veitir upplýsingar um aksturstíma og skipulagningu ferða.
Mikilvægt er að farþegar séu tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfararstaðar á umsömdum tíma. Sé ástæða til aðstoðar bílstjóri farþega frá anddyri og inn í bíl. Ekki er beðið eftir farþega á meðan hann sinnir erindum sínum. Bílstjórum er ekki heimilt að sinna erindum fyrir farþega.
Farþegar þurfa að vera viðbúnir því að tafir og breytingar á áætlun geti orðið, einkum vegna færðar eða annarra hindrana.
Við pöntun ferða skal tekið fram hvort farþegi sé með aðstoðarmann eða gest.
8. gr. Öryggismál og tengd atriði.
Ferðaþjónusta er veitt af framkvæmdaraðila sem sinnir þjónustu samkvæmt samningi við Hafnarfjarðarkaupstað. Allir bílar eru útbúnir samkvæmt reglugerð um gerð og búnað ökutækja og eru öryggisprófaðir.
Akstursaðili ferðaþjónustu Hafnarfjarðar tekur á sig ábyrgð á ráðningu bílstjóra og að starfsmenn séu með fullgild ökuréttindi, aukin ökuréttindi og hafi sótt skyndihjálparnámskeið. Óheimilt er að ráða starfsmann til aksturs í ferðaþjónustu sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla, 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga. Hafi starfsmaður verið dæmdur til refsingar fyrir brot á öðrum ákvæðum almennra hegningarlaga skal meta áhrif þess á hæfi viðkomandi til að gegna því starfi sem um ræðir, m.a. að teknu tilliti til eðlis starfsins og alvarleika brotsins.
Atvikaskrá ber að gera hjá báðum aðilum, fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðar sem hefur umsjón með ferðaþjónustunni og framkvæmdaraðila. Þar ber að skrá atvik og kvartanir sem upp kunna að koma og vinna að úrlausnum með aðilum.
9. gr. Áfrýjun.
Umsækjandi getur vísað ákvörðun fjölskyldu- og barnamálasviðs samkvæmt reglum þessum til fjölskylduráðs innan 4 vikna frá ákvörðun. Jafnframt skal honum kynntur áfrýjunarréttur til úrskurðarnefndar velferðarmála þegar niðurstaða fjölskylduráðs liggur fyrir. Kærufrestur til úrskurðarnefndar velferðarmála eru þrír mánuðir frá því umsækjanda barst vitneskja um niðurstöðu fjölskylduráðs.
10. gr. Gildistaka.
Reglur þessar eru settar samkvæmt 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Reglur þessar voru samþykktar í fjölskylduráði 7. apríl 2026. Reglur þessar voru samþykktar í bæjarstjórn 22. apríl 2026.
Reglur þessar öðlast gildi 15. maí 2026. Jafnframt falla úr gildi eldri reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks í Hafnarfjarðarkaupstað.
Hafnarfirði, 30. apríl 2026.
Guðlaug Ósk Gísladóttir,
sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs.
B deild — Útgáfudagur: 13. maí 2026