Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

7. apríl 2017

Útgáfudagur

24. apríl 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 339/2017

7. apríl 2017

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 24/2015 um inntöku nýnema og inntökupróf í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 5. mgr. 5. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:

Ef ekki tekst að ná þeim fjölda nemenda sem kveðið er á um í fjöldatakmörkun í hjúkrunarfræði ár hvert er deildinni heimilt að bjóða umsækjendum inntöku á grundvelli sömu skilmála og kveðið er á um í 1. mgr. þessarar greinar.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 11. mgr. 98. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 7. apríl 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 24. apríl 2017

Tengd mál