Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

22. desember 2021

Útgáfudagur

7. janúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1719/2021

22. desember 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:

1.21 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1989 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.21.
1.22 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1990 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.22.
1.23 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2125 frá 2. desember 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.23.
2.28 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1985 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.28.
2.29 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1986 frá 15. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.29.
2.30 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/2124 frá 2. desember 2021 um framkvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (EB) nr. 765/2006 með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.30.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 21. desember 2021.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Anna Jóhannsdóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 7. janúar 2022

Tengd mál