Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Ávana- og fíkniefni

Undirritunardagur

26. júní 2025

Útgáfudagur

3. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 41/2025

26. júní 2025

LÖG

um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (breytingar á neyslurými).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. a laganna:

  1. Á eftir orðinu „sveitarfélagi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: heilbrigðisstofnun eða frjálsum félagasamtökum.
  2. Í stað orðanna „Sveitarfélagi sem fengið hefur“ í 2. mgr. kemur: Sveitarfélagi, heilbrigðisstofnun eða frjálsum félagasamtökum sem fengið hafa.
  3. 3. mgr. orðast svo:

    Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem fólk sem er 18 ára og eldra getur notað ávana- og fíkniefni undir eftirliti starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingarvarna.
  4. Á eftir orðinu „sveitarfélagi“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: heilbrigðisstofnun eða frjálsum félagasamtökum.
  5. Á eftir orðinu „Sveitarfélagi“ í 6. mgr. kemur: eða heilbrigðisstofnun.

2. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 26. júní 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Alma D. Möller.

A deild — Útgáfudagur: 3. júlí 2025

Tengd mál