Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hvalfjarðarsveit
Undirritunardagur
20. október 2026
Útgáfudagur
4. nóvember 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1171/2026
20. október 2026
AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna landbúnaðarsvæða.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 20. október 2026 breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. september 2026.
Í breytingunni felst skilgreining fjögurra landbúnaðarsvæða sem í gildandi aðalskipulagi eru öll skilgreind sem landbúnaðarsvæði L3, samtals um 146 ha, við Krossland, Lambhaga/Melahverfi, Heiðarskóla og Narfabakka. Svæðunum er skipt í landbúnaðarsvæði L3, L4, L5 og L6 með ákvæðum um uppskiptingu svæðanna í lóðir og heimildum til fastrar búsetu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 20. október 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 4. nóvember 2026