Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

7. desember 2020

Útgáfudagur

21. desember 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1298/2020

7. desember 2020

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

1. gr.

3. gr. reglnanna breytist og orðast svo:

Til að hefja nám við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis eða frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

2. gr.

7. gr. reglnanna breytist og orðast svo:

Til að hefja nám við stjórnmálafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis eða frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

3. gr.

1. mgr. 11. gr. reglnanna orðast svo:

Til að hefja nám við læknadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) eða verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar.

4. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum félagsvísindasviðs og heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 7. desember 2020.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 21. desember 2020

Tengd mál