Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

7. febrúar 2024

Útgáfudagur

15. júlí 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 34/2024

7. febrúar 2024

AUGLÝSING

um viðbótarbókun við samninginn um tölvubrot.

Hinn 30. janúar 2023 var framkvæmdastjóra Evrópuráðsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna viðbótarbókunar, sem gerð var í Strassborg 28. janúar 2003, við samninginn um tölvubrot, þar sem verknaðir, sem lýsa kynþátta- og útlendingahatri og framdir eru með því að hagnýta tölvukerfi, eru gerðir refsinæmir, sem gerður var í Búdapest 23. nóvember 2001. Af hálfu Íslands voru ákveðnir fyrirvarar gerðir við viðbótarbókunina með vísan til grundvallarreglna Íslands um tjáningarfrelsi. Viðbótarbókunin öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 1. maí 2023.

Viðbótarbókunin, ásamt fyrirvörum Íslands, er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 7. febrúar 2024.

Bjarni Benediktsson.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 15. júlí 2024

Tengd mál