Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
26. október 2026
Útgáfudagur
27. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 27/2026
26. október 2026
AUGLÝSING
um birtingu á ESB-gerð á sviði fjármálaþjónustu sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2026 frá 30. apríl 2026 felur í sér að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2036 frá 19. október 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 og tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar varfærnismeðferð á kerfislega mikilvægum stofnunum á alþjóðavísu með margvíða skilastefnu og aðferðir fyrir óbeina áskrift að gerningum sem eru hæfir til að uppfylla lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar, var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993 þar sem samningurinn var upphaflega birtur.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og reglugerðin sem að framan greinir eru birtar sem fylgiskjöl með auglýsingu þessari. Birtingin er liður í undirbúningi þess að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fyrir Alþingi lagafrumvarp til innleiðingar á viðkomandi reglugerð í íslenskan rétt. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2026 frá 30. apríl 2026 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 23. júlí 2026, bls. 53. Reglugerðin verður jafnframt á síðara stigi birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 26. október 2026.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Eggert Páll Ólason.
C deild — Útgáfudagur: 27. október 2026