Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Mosfellsbær, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd
Undirritunardagur
7. október 2020
Útgáfudagur
22. október 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1023/2020
7. október 2020
AUGLÝSING um staðfestingu á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Álafoss í Varmá í Mosfellsbæ.
Samkvæmt 3. mgr. 81. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, hefur umhverfis- og auðlindaráðherra staðfest stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Álafoss í Varmá í Mosfellsbæ.
Stjórnunar- og verndaráætlunin er birt á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Stjórnunar- og verndaráætlunin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 7. október 2020.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
B deild - Útgáfud.: 22. október 2020