Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Undirritunardagur
7. mars 2025
Útgáfudagur
20. mars 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 11/2025
7. mars 2025
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 296/2025 um (50.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/259 frá 10. febrúar 2025 um breytingu á XIII. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færsluna fyrir Japan í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af hóf- og klaufdýrum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2025.
Hanna
Katrín
Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.
Svava Pétursdóttir.
C deild - Útgáfud.: 20. mars 2025