Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Vesturbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Vesturbyggð

Undirritunardagur

20. október 2026

Útgáfudagur

3. nóvember 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1169/2026

20. október 2026

AUGLÝSING um deiliskipulag í Vesturbyggð.

Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkti á fundi sínum 8. apríl 2026 breytingu á deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið á Patreksfirði. Deiliskipulagsbreytingin er unnin vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs stórskipakants við Patrekshöfn, auk annarra breytinga og lagfæringa innan skipulagssvæðisins. Breytingin felur meðal annars í sér skilgreiningu nýs hafnarkants, stækkun hafnarsvæðis, breytingar á vegtengingum, leiðréttingar á lóðamörkum og uppfærslu skilmála og skipulagsgagna til samræmis við núverandi aðstæður og fyrirhugaða uppbyggingu. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 24. nóvember 2025. Fyrri auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda um sama mál, nr. 1093/2026, er um leið afturkölluð.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Patreksfirði, 20. október 2026.

Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 3. nóvember 2026

Tengd mál