Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Upplýsingar
Undirritunardagur
20. desember 2021
Útgáfudagur
21. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1477/2021
20. desember 2021
AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.
1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 15. desember 2024.
2. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 20. desember 2021.
Katrín
Jakobsdóttir
forsætisráðherra.
Ágúst Geir Ágústsson.
B deild - Útgáfud.: 21. desember 2021