Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Múlaþing, Launamál
Undirritunardagur
19. júní 2023
Útgáfudagur
13. júlí 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 744/2023
19. júní 2023
REGLUR um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Múlaþingi.
1. gr. Um starfskjör.
Reglur þessar byggja á 32. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og ákvæðum 25. gr. samþykktar um stjórn Múlaþings. Reglur þessar fjalla um þóknun fyrir störf sveitarstjórnarfólks og nær einnig til starfa þeirra fulltrúa sem skipaðir eru af sveitarstjórn í stjórnir, ráð og nefndir á vegum sveitarfélagsins.
Grunnur þóknana kjörinna fulltrúa er kr. 1.204.580, sem tekur mið af þingfararkaupi eins og það var í október árið 2016 og hækkar í samræmi við breytingar á kjarasamningi Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi (FOSA) við Samband íslenskra sveitarfélaga til febrúar 2020. Grunnurinn tekur breytingum frá staðfestingu reglna þessara í samræmi við meðaltalsbreytingu á fyrrnefndum kjarasamningi.
2. gr. Markmið.
Markmið með ákvörðun um starfskjör kjörinna fulltrúa er:
að
kjörnir
fulltrúar
fái
sanngjarna
þóknun
fyrir
störf
sín
í
þágu
sveitarfélagsins,
að
kjörin
taki
mið
af
landfræðilegri
stærð
sveitarfélagsins
og
stuðli
að
því
að
kjörnir
fulltrúar
búi
við
sams
konar
tækifæri
til
þátttöku
í
stjórn
sveitarfélagsins,
að
fulltrúar
sveitarfélagsins
njóti
kjara
sem
eru
sambærileg
við
það
sem
gerist
á
hinum
almenna
vinnumarkaði,
hjá
sambærilegum
sveitarfélögum
og
hjá
ríkinu,
að
kjör
fulltrúa
séu
gagnsæ
og
endurspegli
störf
þeirra
og
ábyrgð.
3. gr. Skilgreiningar.
Sveitarstjórnarfulltrúar í Múlaþingi eru 11 og kjörnir í almennum sveitarstjórnarkosningum. Nefndum sveitarfélagsins er skipt niður í eftirfarandi flokka:
- Sveitarstjórn, sem fundar að jafnaði mánaðarlega.
- Fastanefndir: byggðarráð, fjölskylduráð, umhverfis- og framkvæmdaráð, sem funda að jafnaði vikulega.
- Heimastjórnir, sem funda að jafnaði einu sinni til tvisvar í mánuði.
- Aðrar nefndir, stjórnir og notendaráð, sem funda allt að níu sinnum á ári.
- Verkefnabundnar nefndir sveitarstjórnar og fundasetur, sem falla ekki undir liði a-d og starfa samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.
Skilgreining á fundi er sú að til hans sé boðað með dagskrá og um hann sé rituð fundargerð sem komi til umfjöllunar í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
4. gr. Föst mánaðarleg þóknun sveitarstjórnarfulltrúa.
Sveitarstjórnarfulltrúar þiggja fasta þóknun á mánuði fyrir störf sín fyrir sveitarfélagið sem nemur 15% af grunni, sbr. 2. mgr. 1. gr. Á sama hátt þiggur fyrsti varamaður hvers framboðs sem hlýtur kjörinn fulltrúa í kosningum fasta þóknun á mánuði sem nemur 3% af grunni. Forseti sveitarstjórnar fær að auki fast álag á mánuði sem nemur 8% af grunni.
Föst mánaðarleg þóknun til kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa telst vera þóknun fyrir öll þau störf sem sveitarstjórnarfulltrúar taka að sér á vegum sveitarfélagsins og vegna undirbúnings fyrir fundi í sveitarstjórn. Föst mánaðarleg þóknun er einnig vegna funda sem viðkomandi fulltrúar sækja innan og utan sveitarfélagsins.
5. gr. Föst mánaðarleg þóknun heimastjórnarfulltrúa.
Heimastjórnarfulltrúar þiggja fasta þóknun á mánuði fyrir störf sín fyrir sveitarfélagið sem nemur 4,5% af grunni.
6. gr. Fundarseta sveitarstjórnar.
Fulltrúar í sveitarstjórn fá sérstaka þóknun fyrir hvern setinn fund í sveitarstjórn sem nemur 3% af grunni, sbr. 2. mgr. 1. gr. Varafulltrúar sem sitja fundi í sveitarstjórn fá greidda sömu þóknun og aðalfulltrúar fyrir hvern setinn fund. Víki aðalfulltrúi af fundi undir sérstökum dagskrárlið sökum vanhæfis í einstökum málum skal slíkt ekki hafa skerðandi áhrif á þóknun viðkomandi. Taki varafulltrúi sæti aðalfulltrúa á fundi undir sérstökum dagskrárlið skal viðkomandi greidd þóknun sem nemur 1/3 af 3% af grunni.
7. gr. Lífeyrisréttindi og tryggingar.
Sveitarfélagið heldur eftir iðgjaldi í lífeyrissjóð af þóknunum sem greiddar eru samkvæmt reglum þessum eftir ákvæðum laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997. Greitt er iðgjald í lífeyrissjóð og er mótframlag sveitarfélagsins 11,5%.
Sveitarstjórnar- og heimastjórnarfulltrúar eru tryggðir gegn slysum í starfi skv. heildartryggingarsamningi sveitarfélagsins til jafns við starfsmenn sveitarfélagsins.
8. gr. Þóknun fyrir setu í fastanefndum og heimastjórnum.
Fyrir hvern setinn fund í fastanefndum sveitarfélagsins og heimastjórnum, sbr. b- og c-lið 3. gr., er greidd þóknun sem nemur 3% af grunni. Formaður fastanefndar þiggur 7,5% af grunni fyrir hvern fund.
Áheyrnarfulltrúar í fastanefndum, sem tilnefndir eru samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, fá greidda sömu þóknun fyrir fundarsetu og aðalfulltrúar. Aðrir áheyrnarfulltrúar fá ekki greidda þóknun fyrir fundarsetu.
Varafulltrúar í fastanefndum og heimastjórnum fá greidda sömu þóknun og aðalfulltrúar og áheyrnarfulltrúar fyrir hvern setinn fund. Víki aðalfulltrúi af fundi undir sérstökum dagskrárlið sökum vanhæfis í einstökum málum skal slíkt ekki hafa skerðandi áhrif á þóknun viðkomandi. Taki varafulltrúi sæti aðalfulltrúa á fundi undir sérstökum dagskrárlið skal viðkomandi greidd þóknun sem nemur 1/3 af 3% af grunni.
9. gr. Þóknun fyrir setu í öðrum nefndum, stjórnum og ráðum.
Fyrir hvern setinn fund í öðrum nefndum, sbr. d- og e-lið 3. gr., er greidd þóknun sem nemur 2% af grunni.
10. gr. Greiðslur vegna funda og ráðstefna utan sveitarfélagsins.
Fyrir þátttöku á ráðstefnum og fundum utan sveitarfélagsins, sem sveitarstjórn ákveður að taka þátt í, er ekki greidd þóknun til kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins, en allur útlagður kostnaður skal greiddur skv. greiðslukvittunum.
Ekki skal greiða dagpeninga innanlands, heldur greiða skv. útlögðum kostnaði við ferðir kjörinna fulltrúa. Um ferðir erlendis gildir hið sama, en fulltrúar skulu fá samþykki sveitarstjórnar fyrir öllum slíkum ferðum og útgjöldum fyrir fram. Bókanir á flugferðum og gistingu skulu fara í gegnum skrifstofustjóra.
11. gr. Þóknun fyrir setu í nefndum, ráðum og stjórnum á vettvangi samstarfs sveitarfélaga.
Þóknun fyrir setu í nefndum og stjórnum á vettvangi samstarfs sveitarfélaga er greidd af viðkomandi samtökum, nema sveitarstjórn samþykki annað sérstaklega.
12. gr. Þóknun kjörstjórnar.
Fyrir setu í kjörstjórn er greitt skv. tímagjaldi fyrir unnar klukkustundir og skal miðað við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi, launaflokk 129 ásamt orlofi. Kjörstjórn fær greitt fyrir undirbúning, vinnu á kjördag og frágang að kosningum loknum skv. tímaskráningu formanns kjörstjórnar. Einnig er greitt fyrir akstur samkvæmt akstursdagbók.
13. gr. Ferðakostnaður og fjarfundir.
Sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á greiðslu ferða- og dvalarkostnaðar, sbr. 32. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Almennt skal boðið upp á að fulltrúar í nefndum og ráðum geti setið fundi með fjarbúnaði; gegnum síma eða tölvu, og þannig lágmarka kostnað við ferðir innan sveitarfélagsins eins og kostur er. Við notkun á fjarfundabúnaði á fundum skal fylgja reglum sem sveitarfélagið setur um fjarfundi á grundvelli 14. gr. samþykktar um stjórn Múlaþings nr. 1042/2020.
Fulltrúar í sveitarstjórn skulu að jafnaði mæta á fundarstað sveitarstjórnarfunda, nema brýnar ástæður mæli með því að fjarfundabúnaður sé notaður.
Akstur vegna starfa í þágu sveitarfélagsins er einungis greiddur eftir akstursdagbók eða reikningi. Fulltrúar fá greiddan akstur milli heimilis og fundarstaðar enda sé vegalengdin meiri en 5 km. Þegar akstur milli heimilis og fundarstaðar er meiri en þessu nemur dragast 5 km frá akstursvegalengd fyrir hvorn legg, eða samtals 10 km fram og til baka. Miðast greiðslur á ekinn km við ákvörðun ríkisskattstjóra um aksturskostnað. Ætíð skal leitast við að ferðast á sem hagkvæmastan hátt, t.d. nýta ökutæki sveitarfélagsins, bílaleigubíl eða samnýta ferðakosti ef mögulegt er.
14. gr. Starfsaðstaða kjörinna sveitarstjórnar- og heimastjórnarfulltrúa.
Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn og heimastjórnir hafa aðgang að vinnuaðstöðu á skrifstofum sveitarfélagsins í hverjum kjarna í samráði við sveitarstjóra eða fulltrúa sveitarstjóra á viðkomandi stað.
Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn og heimastjórnum eiga rétt á styrk frá sveitarfélaginu til kaupa á tölvu eða síma í upphafi kjörtímabils. Oddvitar framboða og formenn ráða skulu njóta mánaðarlegs símastyrks. Sveitarstjórn ákveður fjárhæðir í upphafi nýs kjörtímabils.
15. gr. Gildistaka og endurskoðun.
Reglur þessar taka gildi við staðfestingu sveitarstjórnar. Reglurnar skal endurskoða af sveitarstjórn við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.
Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 14. júní 2023.
Egilsstöðum, 19. júní 2023.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2023