Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Orkumál

Undirritunardagur

12. desember 2014

Útgáfudagur

30. desember 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1205/2014

12. desember 2014

GJALDSKRÁ

RARIK ohf. (áður Rafmagnsveitur ríkisins) fyrir sölu á heitu vatni.

1. Sala á heitu vatni.

Með 2%
Taxti Tegund Eining Án vsk auðlindaskatti Skýringar
Seyðisfjörður og Höfn:
H1 Fastagjald kr./ár 31.551 32.182 Íbúðarhús
Vatnsgjald kr./m³ 87,12 88,86
Orkugjald kr./kwh 6,35 6,47
Niðurgreiðslur kr./kwh Sjá heimasíðu Orkustofnunar
H2 Fastagjald kr./ár 31.551 32.182 Annað en íbúðarhús, án niðurgr.
Vatnsgjald kr./m³ 87,12 88,86
Orkugjald kr./kwh 6,64 6,77
H23 Fastagjald kr./ár 31.551 32.182 Stórnot/sundlaugar, án niðurgr.
Vatnsgjald kr./m³ 175,07 178,58
Siglufjörður:
H3 Fastagjald kr./ár 5.106 5.208 Hús, eingöngu neysluvatn
Vatnsgjald kr./m³ 299,36 305,34
H4 Fastagjald kr./ár 31.487 32.116 Hús með upphitun
Vatnsgjald kr./m³ 169,79 173,19
Dalabyggð:
H6 Fastagjald kr./ár 31.487 32.116 Hús í þéttbýli
Vatnsgjald kr./m³ 169,79 173,19
H61 Hemilgjald kr./l/ár 38.489 39.259 Sumarhús í dreifbýli
Fastagjald kr./ár 19.243 19.628
H63 Hemilgjald kr./ár 208.472 212.641 Lögbýli, 25 kW
Fastagjald kr./ár 19.243 19.628
Blönduós/Skagaströnd:
H7 Fastagjald kr./ár 31.487 32.116 Hús í þéttbýli og býli
Vatnsgjald kr./m³ 169,79 173,19
H71 Hemilgjald kr./l/ár 38.489 39.259 Sumarhús í dreifbýli
Fastagjald kr./ár 19.243 19.628

Veittur er afsláttur af vatnsgjaldi í þéttbýli á Siglufirði og á Blönduósi/Skagaströnd 2,5% og í Dalabyggð 2% fyrir hverja gráðu sem hitastig vatnsins við mælagrind húsa er undir 70°C.

Afsláttur getur mestur tekið mið af hitafalli að 55°C.

Hitastig frá virkjunarsvæði fyrir Dalabyggð er 85°C, fyrir Siglufjörð 72°C og fyrir Blönduós 73°C.

2. Niðurgreiðslur og virðisaukaskattur.
2.1 Niðurgreiðslur.
Á taxta H1 er niðurgreidd orka allt að 40.000 kWh á ári eða allt að 110 kWh á dag að jafnaði á notkunartímabilinu.
Orkustofnun hefur umsjón með niðurgreiðslum, sjá nánar á vef Orkustofnunar: www.os.is.
2.2 Virðisaukaskattur.
Virðisaukaskattur á húshitun er í neðra þrepi. Virðisaukaskattur á tengigjöld til húshitunar er í neðra þrepi, önnur tengigjöld bera fullan vsk. Virðisaukaskattur af þjónustu ræðst af veitutaxta.
2.3 Umhverfis og auðlindaskattur.
Skattur á smásöluverð af heitu vatni er 2%.
3. Tengigjöld.
3.1 Tengigjöld í þéttbýli.
Tengigjald fyrir hverja 20 mm heimæð er 247.670 kr. án vsk. Fyrir hverja mælagrind umfram eina greiðast 94.108 kr. án vsk.
3.2 Takmörkun.
RARIK er heimilt að takmarka aðgang að heitavatnskerfi ef orkuöflun gefur tilefni til.
3.3 Aukakostnaður.
Sé fyrirsjáanlegt vegna fjarlægðar eða annarra aðstæðna að kostnaður við lagningu heimtaugar verði meira en 50% hærri en gildandi gjaldskrá segir til um samkvæmt lið 3.1 skal greiða þann áætlaða kostnað sem er umfram 50%.
3.4 Tengigjöld í dreifbýli, frávik og breytingar.
Gjöld fyrir dreifbýli og aðrar stærðir heimæða í þéttbýli en um getur að ofan svo og fyrir breytingar greiðist samkvæmt skriflegu tilboði hverju sinni.
3.5 Endurtenging.
Sé veitu lokað um lengri tíma en 6 mánuði má búast við aftengingu heimæðar. Falli notkun um heimæð niður í að minnsta kosti 5 ár, telst heimæð aflögð og þarf að greiða fullt tengigjald hefjist notkun að nýju. Fyrir skemmri tíma greiðist fastagjald samkvæmt taxta H.1 fyrir hvert ár sem liðið er frá aftengingu auk endurtengingargjalds 38.332 kr. án vsk.
3.6 Breytingar.
Breytingar aðrar en stækkun á heimæð, eru háðar framkvæmdaáætlun RARIK hverju sinni.
3.7 Annað.
Heimæðar eru í eigu RARIK en með greiðslu tengigjalda öðlast notandi afnotarétt. Tengigjöld skulu greidd áður en framkvæmd hefst.
4. Þjónusta.
4.1 Vanskilainnheimta VI100.
Gjald lagt á útsendingu innheimtubréfs kr./bréf 2.100
4.2 Veitulokun VI200.
Gjald fyrir lokun veitu á vinnutíma kr./lokun 12.219
Gjald fyrir opnun veitu á vinnutíma kr./opnun 0
Gjald fyrir opnun veitu utan vinnutíma kr./opnun 24.463
4.3 Mælaálestrar VÞ100.
Reglubundnir álestrar kr./álestur 0
Aukaálestur starfsmanns veitu kr./álestur 5.090
Aukaálestur, sjálfsálestur notanda kr./álestur 0
4.4 Útkall VÞ300.
Útkall á vinnutíma kr./útkall 12.219
Útkall utan vinnutíma kr./útkall 24.436
4.5 Seðilgjald.
Seðilgjald kr./reikn. 164
Öll verð eru án vsk
5. Almennar skýringar.
5.1 Innheimtugjald.
Gjald til greiðslu kostnaðar við vanskilainnheimtu, lagt á við útsendingu innheimtubréfs.
5.2 Lokunargjald.
Gjöld til greiðslu kostnaðar við að loka og opna fyrir afhendingu á heitu vatni.
5.3 Aukaálestrar.
Aukaálestrar skulu að jafnaði fengnir með sjálfsálestri notanda sem komið er til skila gegnum síma, skriflega eða með innslætti á heimasíðu RARIK.
5.4 Útkall.
Útkall vegna bilunar sem reynist vera í veitu (kerfi) notanda skal hann greiða samkvæmt gjaldskránni.
5.5 Greiðslumátagjöld.
Greiðslumáti er samheiti yfir það með hvaða hætti reikningur sem til verður í reikningskerfi er gerður greiðsluhæfur fyrir viðskiptavininn. Dæmi um greiðslumáta: beingreiðsla, boðgreiðsla, bankagreiðsla á greiðsluseðli, greiðsla í heimabanka, rafrænn greiðslumáti o.s.frv.
6. Gildistaka og brottfall eldri gjaldskrár.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn RARIK ohf., sbr. 6. gr. laga nr. 25/2006, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að taka gildi 1. janúar 2015. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá RARIK ohf. sama efnis nr. 740/2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014

Tengd mál

Stjórnartíðindi