Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli

Undirritunardagur

4. október 2024

Útgáfudagur

21. október 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1162/2024

4. október 2024

REGLUGERÐ

um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/160 um samræmda lágmarkstíðni tiltekins opinbers eftirlits til að staðfesta að farið sé að dýraheilbrigðiskröfum Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og um niðurfellingu á reglugerðum (EB) nr. 1082/2003 og (EB) nr. 1505/2006.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar skal eftirtalin ESB-gerð taka gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/160 frá 4. febrúar 2022 um samræmda lágmarkstíðni tiltekins opinbers eftirlits til að staðfesta að farið sé að dýraheilbrigðiskröfum Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og um niðurfellingu á reglugerðum (EB) nr. 1082/2003 og (EB) nr. 1505/2006. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2024, frá 12. júní 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 35, frá 29. ágúst 2024, bls. 95.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2024.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 4. október 2024.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

B deild - Útgáfud.: 21. október 2024

Tengd mál