Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Undirritunardagur
23. mars 2025
Útgáfudagur
23. mars 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 9/2025
23. mars 2025
FORSETAÚRSKURÐUR um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra.
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands eru hér með gerðar eftirfarandi breytingar á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra:
1. gr.
9. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:
Mennta- og barnamálaráðherra.
Guðmundur Ingi Kristinsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og barnamálaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.
2. gr.
Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 23. mars 2025.
Halla
Tómasdóttir.
(L.
S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild - Útgáfud.: 23. mars 2025