Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

11. september 2017

Útgáfudagur

4. október 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 846/2017

11. september 2017

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætist við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:

1.10 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/412 frá 7. mars 2017 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 1.10.
1.11 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/901 frá 24. maí 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 1.11.
1.12 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/916 frá 29. maí 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 1.12.
1.13 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1103 frá 20. júní 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 1.13.
2.10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/400 frá 7. mars 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 2.10.
2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/890 frá 24. maí 2017 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 2.11.
2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/906 frá 29. maí 2017 um framkvæmd 3. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 2.12.
2.13 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/1090 frá 20. júní 2017 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 2.13.

Eftirfarandi töluliðir í sömu grein skulu falla niður: 1.8 og 2.8.

Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein sem verður 3. mgr.:

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar „Skrá yfir varnartengdar vörur“. Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

Þriðja málsgrein 2. gr. verður 4. mgr.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 4. október 2017

Tengd mál