Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip

Undirritunardagur

9. apríl 2026

Útgáfudagur

17. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 28/2026

9. apríl 2026

LÖG

um breytingu á skipalögum, nr. 66/2021 (EES-reglur).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „viðurkenndu flokkunarfélagi“ í 5. tölul. kemur: viðurkenndri stofnun.
  2. 13. tölul. orðast svo: Viðurkennd stofnun er stofnun sem hlotið hefur viðurkenningu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit.

2. gr.

  1. Í stað orðanna „viðurkenndra flokkunarfélaga“ í 2. málsl. 1. mgr. 26. gr. laganna kemur: viðurkenndra stofnana.
  2. Í stað orðanna „viðurkenndu flokkunarfélagi“ í 2. mgr. 26. gr. og 4. mgr. 30. gr. laganna kemur: viðurkenndri stofnun.
  3. Í stað orðanna „viðurkennds flokkunarfélags“ í 1. málsl. 28. gr. laganna kemur: viðurkenndrar stofnunar.

3. gr.

Við lögin bætist ný grein, 45. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Valdheimildir Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins.

Eftirlitsstofnun EFTA er heimilt að leggja sekt eða févíti á viðurkennda stofnun sem hefur verið viðurkennd á grundvelli beiðni frá EFTA-ríki í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur.

EFTA-dómstóllinn skal hafa lögsögu til að endurskoða ákvarðanir Eftirlitsstofnunar EFTA um sektir eða févíti skv. 1. mgr.

Ráðherra skal setja reglugerð um framkvæmd sameiginlegra reglna og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og frekari skilyrði ákvarðana Eftirlitsstofnunar EFTA.

4. gr.

Við lögin bætist ný grein, 48. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Innleiðing.

Lög þessi eru sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 410–422, eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 326/2023 frá 8. desember 2023.

5. gr.

Fyrirsögn VI. kafla laganna verður: Gjöld, viðurlög o.fl.

6. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

7. gr.Breyting á öðrum lögum.

Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012: Í stað orðanna „viðurkenndu flokkunarfélagi“ í 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: viðurkenndri stofnun.

Gjört á Bessastöðum, 9. apríl 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Eyjólfur Ármannsson.

A deild — Útgáfudagur: 17. apríl 2026

Tengd mál