Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður

Undirritunardagur

12. apríl 2022

Útgáfudagur

19. apríl 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 442/2022

12. apríl 2022

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 371/2020 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/625 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar kröfur vegna komu sendinga af tilteknum dýrum og vörum, sem eru ætluð til manneldis, inn í Sambandið.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2022 frá 4. febrúar 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/573 frá 1. febrúar 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/625 að því er varðar skilyrði fyrir innflutningi á lifandi sniglum, samsettum afurðum og görnum sem eru sett á markað til manneldis. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. febrúar 2022, bls. 176.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við ákvæði 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli eða 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 12. apríl 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

B deild - Útgáfud.: 19. apríl 2022

Tengd mál