Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Orkumál, Seltjarnarnes
Undirritunardagur
5. janúar 2016
Útgáfudagur
11. janúar 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 7/2016
5. janúar 2016
AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.
Samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237, 4. mars 2011 og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012, er tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.
3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
Gjöld fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:
| Tegund | Veitusvæði | Kr. | 2% skattur | Grunnur |
| Einingaverð | Sala í þéttbýli, húshitun | 79,00 | 1,52 | kr./m³ |
| Einingaverð | Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu | 79,00 | 1,52 | kr./m³ |
| Einingaverð | Sala í þéttbýli, til iðnaðar | 79,00 | 1,52 |
| Tegund | Stærð mælis | Kr. | 2% skattur | Grunnur |
| Fast verð | A: 15 mm og stærri | 20,00 | 0,38 | kr./dag |
Fast gjald er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.
Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er óháð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.
5. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
| Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m³ að stærð | kr. | 196.875 |
| Umframgjald fyrir hús 300-1.000 m³ að stærð | kr. | 237 pr. m³ |
| Umframgjald fyrir hús yfir 1.000 m³ að stærð | kr. | 159 pr. m³ |
| 1 rennslismælir á grind | kr. | 62.810 |
Aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. janúar 2016.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Ingvi Már Pálsson.
B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2016