Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
7. apríl 2017
Útgáfudagur
26. apríl 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 357/2017
7. apríl 2017
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 140/2014 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglnanna:
- Í stað tölunnar „30“ í 4. málsl. i. liðar kemur: 40.
- 1. málsl. v. liðar orðast svo: Rannsóknarverkefni til meistaraprófs er 40 e. og skal að jafnaði unnið á seinna námsári meistaranámsins.
- Í stað tölunnar „15“ í 2. málsl. v. liðar kemur: 20.
2. gr.
Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af lyfjafræðideild og stjórn heilbrigðisvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar taka gildi frá og með háskólaárinu 2017-2018.
Háskóla Íslands, 7. apríl 2017.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2017