Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Mannvirki, Dalasýsla

Undirritunardagur

12. desember 2019

Útgáfudagur

6. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1311/2019

12. desember 2019

GJALDSKRÁ

fyrir byggingarleyfis-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Dalabyggð.

1. gr. Almenn ákvæði.

1.1 Við útgáfu byggingarleyfis, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.
1.2 Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.

2. gr. Byggingarleyfisgjald.

Fyrir byggingarleyfi.

2.1 Íbúðarhúsnæði:
Neðangreind gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald,gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar.
Einbýlishús kr. 167.131
Parhús, tvíbýlishús eða raðhús á einni hæð kr. 140.743 pr. íbúð
Raðhús á fleiri en einni hæð eða fjölbýlishús með þremur íbúðum kr. 119.856 pr. íbúð
Fjölbýlishús, tvær hæðir, með fjórum íbúðum eða fleiri kr. 101.573 pr. íbúð
Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri með fjórum íbúðum eða fleiri kr. 86.080 pr. íbúð
2.2 Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir:
Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar.
Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði
með íbúðum, gólfflötur allt að 500 m² kr. 167.131
Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama
húsnæði með íbúðum, gólfflötur stærri en 500 m² kr. 225.627
2.3 Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar:
Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar.
Frístundahús stærri en 50 m² kr. 167.131
Smáhýsi allt að 10 m² kr. 12.567
Smáhýsi frá 10 m² að 25 m² (aukahús við frístunda- og íbúðarhús) kr. 41.783
Frístundahús 25-50 m² kr. 83.556
Sólstofur, garðhús, bílgeymslur fyrir mest 2 bíla og
viðbyggingar allt að 20 m² kr. 41.783
Viðbyggingar 20-100 m² kr. 83.566
Byggingarleyfisgjöld af viðbyggingum sem eru minni en 100 m² kr. 83.566
Byggingarleyfisgjöld af viðbyggingum sem eru stærri en 100 m²
skulu vera þau sömu og byggingarleyfisgjöld af því húsnæði
sem byggt er við.
Vélageymslur/korngeymslur allt að 300 m² (ef stærra en 300 m²,
gildir sama gjald og um væri að ræða atvinnuhúsnæði) kr. 94.284
Fjárhús, fjós og hesthús og/eða sambærileg hús allt að 300 m²
(ef stærra en 300 m², gildir sama gjald og um væri að
ræða atvinnuhúsnæði) kr. 94.284
Gróðurhús allt að 300 m² (ef stærra en 300 m², gildir sama
gjald og um væri að ræða atvinnuhúsnæði) kr. 94.284
Gjald vegna húsa s.s. sumarhúsa sem flutt eru inn á svæði
Dalabyggðar fullbúin og sett á tilbúnar undirstöður kr. 83.566

3. gr. Þjónustugjöld.

3.1 Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir:
3.1.1 Afgreiðslugjald kr. 11.436
3.1.2 Endurskoðun aðaluppdrátta kr. 14.389
3.1.4 Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla kr. 37.071
3.1.5 Úttekt vegna meistaraskipta kr. 37.071
3.1.6 Úttekt vegna byggingarstjóraskipta kr. 37.071
3.1.7 Útttekt vegna rekstrarleyfis kr. 37.071
3.1.8 Húsaleiguúttektir á íbúðarhúsnæði kr. 37.071
3.1.9 Húsaleiguúttektir á atvinnuhúsnæði kr. 37.071
3.1.10 Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, 1-5 fastanúmer í húsi kr. 34.821
3.1.11 Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fnr. > 5 kr. 4.775
3.1.12 Tímabundin stöðuleyfi kr. 22.620
3.1.13 Staðfestingargjald vegna lóðarúthlutunar, óendurkræft kr. 29.028
3.1.14 Breyting og gerð á nýjum lóðarleigusamningi kr. 41.217
3.1.15 Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs kr. 22.620
3.1.16 Aukaúttekt kr. 13.070
3.1.17 Aukamæling á útsetningu húss kr. 64.088
3.1.18 GPS mæling/lóðaruppdráttur (4-6 punktar) kr. 56.548

Útprentun á gögnum, teikningum eða öðrum tilheyrandi skjölum (svart/hvítt):

A-4 = kr. 51
A-3 = kr. 108
A-2 = kr. 377
A-1 = kr. 628

Útprentun á deiliskipulagsuppdráttum o.fl. í lit:

A-4 = kr. 189
A-3 = kr. 315
A-2 = kr. 628
A-1 = kr. 1.257

4. gr. Framkvæmdaleyfisgjald og gjald fyrir skipulagsvinnu.

4.1 Fyrir framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir:
Að meginreglu skal sá sem óskar eftir nýju deiliskipulagi eða breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi greiða þann kostnað sem verkið hefur í för með sér.
Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.
4.2 Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.
4.3 Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulags- og byggingarfulltrúa sem er 11.310 kr./klst. eða gjald skv. reikningi.
Kostnaður vegna skipulagsvinnu.
4.4 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:
Afgreiðslugjald kr. 11.436
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald kr./klst. 11.310
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. kr. 339.288
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. kr. 226.193
4.5 Kostnaður vegna nýs deiliskipulags:
Afgreiðslugjald kr. 11.436
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr., krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald kr./klst. 11.310
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. kr. 150.795
4.6 Kostnaður vegna verulegra breytinga á deiliskipulagi:
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr., krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald kr./klst. 11.310
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga, sbr. 1. mgr. 43. gr. kr. 150.795
4.7 Kostnaður vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi:
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr., krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald kr./klst. 11.310
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 2. mgr. 43. gr. kr. 50.256
4.8 Kostnaður vegna grenndarkynningar:
Grenndarkynning kr. 50.256
Grenndarkynning, minniháttar kr. 21.991
Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.
4.9 Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.
4.10 Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.
4.11 Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.
4.12 Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins vegna þeirrar vinnu hluti af útlögðum kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfisins.
4.13 Fyrir framkvæmdaleyfi skal greiða gjöld sem hér segir:
Afgreiðslugjald kr. 11.436
Framkvæmdaleyfi - framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald kr./klst. 11.310
Framkvæmdaleyfi - aðrar framkvæmdir, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald kr./klst. 11.310
Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi kr. 11.436
Umsýsla og yfirferð gagna kr. 17.593
Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar kr. 11.436
Áfangaúttekt kr. 45.364

5. gr. Gjalddagi, lögveð.

5.1 Gjalddagi afgreiðslugjalda er við afgreiðslu umsókna.
5.2 Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis.
5.3 Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis.
5.4 Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingarleyfi falli úr gildi eða umsókn sé dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis.
5.5 Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi.

6. gr. Verðlagsbreytingar.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2019 sem er 146,4 stig og breytist 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni.

7. gr. Gildistaka o.fl.

7.1 Gjaldskrá þessi, sem er samþykkt í sveitarstjórn Dalabyggðar þann 12. desember 2019 er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

7.2 Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 158/2013 fyrir byggingarleyfis-, þjónustu- og framkvæmdaleyfisgjöld í Dalabyggð.

Dalabyggð, 12. desember 2019.

Kristján Sturluson sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2020

Tengd mál