Starfatorg - laus störf hjá ríkinu
Leit
334 störf fundust
Skrifstofustörf
Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæslan óskar eftir jákvæðum launafulltrúa í fjölbreytt starf
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða jákvæðan og talnaglöggan einstakling í starf launafulltrúa á mannauðssviði. Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf í lifandi og faglegu starfsumhverfi þar sem nákvæmni, samheldni og samvinna skipta máli.
Suðurnes
Tæknistörf
Vinnueftirlitið
Vilt þú stuðla að vinnuvernd með skoðun vinnuvéla?
Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi? Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði.
Höfuðborgarsvæðið
Sérfræðistörf
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Mannauðsfulltrúi
Ert þú nákvæma talnatýpan sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk? Mannauðssvið Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða jákvæðan, kraftmikinn og skipulagðan aðila í 80% - 100% starf mannauðsfulltrúa.
Norðurland eystra, Norðurland vestra
Stjórnunarstörf
Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin
Stabschef till Generalsekreterarens kontor vid Nordiska ministerrådets sekretariat i Köpenhamn
Vill du vara med och driva det nordiska regeringssamarbetet i en tid som ställer krav på ett starkare och mer samstämt Norden?
Erlendis
Önnur störf
Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin
Nordens hus i Köpenhamn söker en tolknings- och översättningsrådgivare
Nordiska ministerrådet söker en kvalificerad och engagerad tolknings- och översättningsrådgivare med isländska som A-språk. Tolknings- och översättningsenheten har fem anställda och är en del av kommunikationsavdelningen som leds av kommunikationschefen.
Erlendis
Önnur störf
Landsréttur
Dómvörður
Landsréttur auglýsir lausa til umsóknarstöðu dómvarðar í fullt starf. Starfið felur í sér fjölþætt öryggis- og þjónustuhlutverk við dómstólinn.
Höfuðborgarsvæðið
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Æðaskurðlæknir á skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu
Laust er til umsóknar starf æðaskurðlæknis á skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Höfuðborgarsvæðið
Fossvogi
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í meltingarteymi Landspítala sem staðsett er á almennri göngudeild 10E við Hringbraut.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga í okkar góða hóp á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG við Hringbraut. Starfshlutfall er 70%-100% og er upphaf starfa samkomulag. Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við óskum eftir að ráða sjúkraliða til starfa í okkar góða hóp á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG og bjóðum nýútskrifaða sjúkraliða jafnt sem reynslumikla velkomna. Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall 70%-100% og er upphaf starfa samkomulag.
Höfuðborgarsvæðið
Hringbraut
Kennsla og rannsóknir
Menntaskólinn að Laugarvatni
Raunvísindakennari við Menntaskólann að Laugarvatni skólaárið 2026-2027
Menntaskólinn að Laugarvatni óskar eftir að ráða kennara í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði á þriðja þrepi til eins árs. Menntaskólinn að Laugarvatni er framhaldsskóli sem byggir á bekkjakerfi.
Suðurland
Skólatún 1
Heilbrigðisþjónusta
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Sumarstarf Hjúkrunarfræðingar - Upplýsingamiðstöð HH
Upplýsingamiðstöð HH er að leita að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem vilja takast á við spennandi, fjölbreytt og krefjandi verkefni í sumar. Um er að ræða tímabundin störf í breytilegu starfshlutfalli á öllum tímum sólarhringsins og er vinnufyrirkomulag samkomulagsatriði.
Höfuðborgarsvæðið
Álfabakki 16