Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í eðlisfræði og stærðfræði

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026

Kennari í eðlisfræði og stærðfræði

Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar að ráða kennara í eðlisfræði og stærðfræði næsta skólaár. Um er að ræða eina stöðu sem byggir á þessum tveim fögum.

Ráðningartími er frá 1. ágúst 2026 og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og KÍ hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari kennir og undirbýr kennslu, og metur nám í hvorri kennslugrein samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár. Gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.

Kennsluréttindi og menntun í viðkomandi fögum.

Kennslureynsla er mikilvæg.

Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Pétur Ásmundsson

Tölvupóstur: kras@fss.is

Sími: 421-3100

Guðlaug Málfríður Pálsdóttir

Tölvupóstur: gudlaug.palsdottir@fss.is

Sími: 421-3100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í eðlisfræði og stærðfræði

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026