Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
70-80%
Starf skráð
09.06.2026
Umsóknarfrestur
19.06.2026
Félagsráðgjafi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Laust er til umsóknar starf félagsráðgjafa í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Um er að ræða 70-80% framtíðarstarf.
Geðheilsuteymið sinnir einstaklingum með alvarleg geðræn vandamál, sem þurfa á fjölþættri þjónustu að halda. Í geðheilsuteymi starfa geðlæknir, hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur. Félagsráðgjafi kemur til með að vera málastjóri þjónustuþega í einhverjum tilfellum og hefur þá það hlutverk að halda utan um þjónustu við notanda, setja upp meðferðaráætlun og hafa yfirsýn með þörfum hans varðandi stuðning og miðlar því til annarra starfsmanna teymisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Félagsráðgjöf, málastjórnun og þverfaglegt samstarf
Aðkoma að mótun starfs félagsráðgjafa innan þverfaglegs geðheilsuteymis, stefnumótun, mótun verkferla og starfsáætlana
Aðkoma og ráðgjöf í sálfræðiteymi barna
Samþætting félagslegra úrræða og samstarf við viðeigandi stofnanir
Virk þátttaka í þverfaglegri þjónustu og meðferð einstaklinga og aðstandenda
Klínísk vinna í teyminu
Fræðsla til notenda og aðstandenda
Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni
Ýmis verkefni sem starfsemi deildarinnar felur í sér
Aðkoma og ráðgjöf á öðrum deildum innan HSS
Hæfniskröfur
Starfsleyfi frá Embætti Landlæknis
Fjölbreytt starfsreynsla á sviði félags- og/ eða heilbrigðisþjónustu er kostur
Reynsla af vinnu með einstaklingum sem glíma við geðrænan vanda
Reynsla af klínískri vinnu með börnum og foreldrum þeirra
Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi er kostur
Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi kynningarbréf, náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.
Starfshlutfall er 70-80%
Umsóknarfrestur er til og með 19.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Inga Guðlaug Helgadóttir
Tölvupóstur: inga.g.helgadottir@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
70-80%
Starf skráð
09.06.2026
Umsóknarfrestur
19.06.2026