Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starf ritara taugalækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Starf ritara taugalækninga

Við óskum eftir lausnamiðuðum og skipulögðum einstaklingi í starf ritara á göngudeild taugasjúkdóma. Um er að ræða tímabundið dagvinnustarf til 6 mánaða og er starfið laust frá 1. júlí 2026.

Ritari gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi deildarinnar og felast verkefnin m.a. í umsjón með vinnutímaskráningu, frágangi sjúkraskráa, umsjón með bókun sjúklinga í taugarannsókn og fleira. Lögð er áhersla á góða teymisvinnu, skipulagða starfshætti og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga og starfsumhverfis.

Á taugalækningadeild Landspítala starfar öflugur hópur sérfræðilækna og annarra fagstétta í þverfaglegu teymi þar sem áhersla er lögð á faglega og samfellda þjónustu við sjúklinga með taugasjúkdóma. Deildin sinnir fjölbreyttum verkefnum og er í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans og stoðþjónustu.

Starfshlutfall er 100% eða samvæmt nánara samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með bókun sjúklinga í dag- og göngudeild taugasjúkdóma og taugarannsókn

  • Umsjón og frágangur sjúkraskráa

  • Umsjón með vinnutímaskráningu

  • Upplýsingagjöf og samskipti, meðal annars við skjólstæðinga og starfsmenn

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað nám sem nýtist í starfi

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð tölvukunnátta, skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

  • Starfsreynsla úr heilbrigðisþjónustu og þekking á Sögu kerfinu kostur

  • Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Bryndís Einarsdóttir

Yfirlæknir

Tölvupóstur: annabei@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starf ritara taugalækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026