Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarskólameistari

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026

Aðstoðarskólameistari

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í samræmi við 5. grein reglugerðar nr. 1100/2007 um starfslið og skipulag framhaldsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og vinnur með honum við daglega stjórn skólans og rekstur. Nánari útfærslu má finna í stofnanasamningi skólans

Hæfniskröfur

Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt gildandi lögum.

Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

Mjög góð samskiptahæfni og ríkur samstarfsvilji.

Viðkomandi verður að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Pétur Ásmundsson

Tölvupóstur: kras@fss.is

Sími: 421-3100

Guðlaug Málfríður Pálsdóttir

Tölvupóstur: gudlaug.palsdottir@fss.is

Sími: 421-3100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarskólameistari

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026