Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknisfræðilegur eðlisfræðingur á geislameðferðardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

13.07.2026

Læknisfræðilegur eðlisfræðingur á geislameðferðardeild

Geislameðferðardeild Landspítala óskar eftir að ráða læknisfræðilegan eðlisfræðing til starfa í sérhæfðu eðlisfræðiteymi deildarinnar. Við leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og nýtur þess að starfa í teymisvinnu.

Deildin er eina sinnar tegundar á Íslandi og sinnir um 1000 sjúklingum á ári með tveimur Varian TrueBeam línuhröðlum. Til að mæta vaxandi eftirspurn eftir geislameðferð mun deildin þurfa að stækka á næstu árum með uppsetningu fleiri línuhraðla og tengdum búnaði svo viðkomandi mun hafa tækifæri til að taka þátt í spennandi uppbyggingu.

Hlutverk okkar er að veita framúrskarandi klíníska þjónustu í síbreytilegu hátækniumhverfi með öflugu þverfaglegu samstarfi.

Staðan er laus frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% og unnið er að mestu í dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með og þátttaka í geislaplönun og undirbúningi fyrir geislameðferð

  • Geislamælitækni og gæðaeftirlit á línuhröðlum, CT og tengdum búnaði

  • Innleiðing nýrrar tækni og skilgreining verkferla

  • Teymisvinna með öðrum stéttum s.s. læknum og geislafræðingum

  • Þátttaka í kennslu, þjálfun og vísindavinnu eins og við á

  • Önnur sérhæfð verkefni sem heyra undir starfsemi deildarinnar

Hæfniskröfur

  • MSc. í læknisfræðilegri eðlisfræði er æskileg en annars er MSc. í eðlisfræði skilyrði

  • Reynsla og þekking á geislameðferð og myndgreiningu er æskileg

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, metnaður og hæfni til að forgangsraða og vinna sjálfstætt eru skilyrði

  • Þekking á íslensku er æskileg

  • Góð enskukunnátta og vilji til að læra íslensku er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum.. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Eðlisfræðingur

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hanna Björg Henrysdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: hannabhe@landspitali.is

Sími: 825 9383

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknisfræðilegur eðlisfræðingur á geislameðferðardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

13.07.2026