Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starf ritara í áfallateymi, geðþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026

Starf ritara í áfallateymi, geðþjónustu

Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í þverfaglegu umhverfi. Um er að ræða starf í móttöku áfallateymis sem staðsett er í Skógarhlíð. Meginhlutverk starfsins er að taka á móti fólki af umhyggju og fagmennsku, veita góða þjónustu og stuðla að jákvæðri upplifun þeirra sem leita til þjónustunnar.

Góður starfsandi er ríkjandi í teyminu og einkennist starfsemin af öflugri þverfaglegri teymisvinnu. Ritarar þjónustunnar gegna þar mikilvægu hlutverki og eru ómissandi hluti teymisins.

Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu virka daga. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn og sérhæfð ritarastörf s.s. símsvörun, móttaka sjúklinga, tímabókanir, og upplýsingagjöf

  • Svörun og flokkun á rafrænum samskiptum

  • Pöntun aðfanga, umsjón með áfyllingum á lager

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og hæfni í samskiptum

  • Reynsla af ritarastörfum á Landspítala er kostur

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og útsjónarsemi

  • Áreiðanleiki og stundvísi

  • Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á tölvukerfi Landspítala er kostur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofumaður, ritari, skrifstofustörf, móttaka

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Skógarhlíð, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sandra Friðriksdóttir

Tölvupóstur: sandraf@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starf ritara í áfallateymi, geðþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026