Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/ Teymisstjóri geðteymis fangelsa

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026

Hjúkrunarfræðingur/ Teymisstjóri geðteymis fangelsa

Vilt þú leiða mikilvægt og sérhæft geðteymi og hafa raunveruleg áhrif á þróun þjónustu fyrir viðkvæman hóp?

Ferliþjónusta réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi til að taka við starfi teymisstjóra geðteymis fangelsa. Um er að ræða spennandi leiðtogahlutverk í öflugu þverfaglegu teymi þar sem faglegur metnaður, nýsköpun og samstarf eru í forgrunni.

Sem teymisstjóri munt þú leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun þjónustunnar, taka þátt í stefnumótun og skapa tækifæri til umbóta í samstarfi við fjölbreyttan hóp haghafa.

Framundan eru fjölmörg þróunarverkefni sem bjóða upp á spennandi áskoranir og góð tækifæri til starfs- og leiðtogaþróunar.

Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. júlí 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Gert er ráð fyrir að teymisstjóri sinni einnig klínískum verkefnum í teyminu.

Um starfsemina:Geðteymi fangelsa er þverfaglegt teymi sem veitir heildræna, batamiðaða geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa landsins. Lögð er áhersla einstaklingsmiðaða þjónustu, samfellu í meðferð og stuðning við þjónustuþega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forysta í þverfaglegu geðteymi fangelsa

  • Náin samvinna við stjórnendur ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu

  • Geðheilbrigðisþjónusta í samræmi við gagnreynda þekkingu

  • Utanumhald og yfirsýn yfir starfsemi geðteymis fangelsa

  • Þátttaka í þróun þjónustu og gæða- og umbótastarfi

  • Samskipti við tengiliði hlutaðeigandi samstarfsstofnana og aðra haghafa

  • Málastjórn

  • Ábyrgð á þjálfun og kennslu nema

  • Sinnir tilfallandi verkefnum hjúkrunar innan ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu

  • Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur

  • Framhaldsnám á sviði geðhjúkrunar er kostur

  • Reynsla af leiðtogahlutverki/ stjórnun er kostur

  • Reynsla af málastjórn er kostur

  • Brennandi faglegur áhugi á að efla geðheilbrigðisþjónustu við þjónustuþega

  • Hæfni til að þróa og aðlaga geðheilbrigðisþjónustu að fjölbreyttum þörfum þjónustuþega

  • Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að takast á við krefjandi verkefni

  • Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum

  • Mjög góð færni í samskiptum og teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

  • Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar

  • Gilt ökuskírteini

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna, umbótastarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5,

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ína Rós Jóhannesdóttir

Tölvupóstur: inaros@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/ Teymisstjóri geðteymis fangelsa

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026