Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
90%
Starf skráð
08.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026
Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðing á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 90% eða eftir samkomulag, um er að ræða dagvinnu og auk bakvakta aðra hvora viku. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur á skurðstofu sinnir útköllum á skurðstofu og sér um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir inni á skurðstofu, aðstoðar við framkvæmd aðgerða og sér um verkfæri og tækjabúnað sem við á.
Hæfniskröfur
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Sérmenntun í skurðhjúkrun skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Skilyrði að hafa gilt ökuleyfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 90%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Lilja Ester Ágústsdóttir
Tölvupóstur: lilja.e.agustsdottir@hsa.is
Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
90%
Starf skráð
08.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026