Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026

Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Fossvogi

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á skurðlækningadeild B6 í Fossvogi. Unnið er í vaktavinnu og er vinnufyrirkomulag, starfshlutfall og upphaf starfa samkvæmt samkomulagi.

Við bjóðum nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing jafnt sem reynslumikinn velkominn í hópinn. Hjá okkur ríkir einstaklega góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Áhersla er lögð á framþróun og símenntun starfsfólks og er öllum nýliðum veitt góð einstaklingshæfð aðlögun.

Skurðlækningadeild er 23 rúma deild sem þjónustar sjúklinga fjögurra sérgreina: Háls-nef- og eyrna-, lýta-, æða- og heila- og taugaskurðlækninga. Á deildinni er mikil sérhæfing í sárameðferð og er þetta eina deildin á landinu sem sinnir alvarlegri brunaáverkum. Innan deildarinnar er hágæslueining fyrir þá sjúklinga sem þurfa stöðugt og nákvæmt eftirlit, svo sem eftir stærri skurðaðgerðir á höfði og æðum, áverka eða eftir gjörgæsludvöl.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Fylgjast með nýjungum innan hjúkrunar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og geta til að vinna í teymum

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Steinunn Arna Þorsteinsdóttir

Tölvupóstur: steitors@landspitali.is

Sími: 824-3452

Magney Ósk Bragadóttir

Tölvupóstur: magneyob@landspitali.is

Sími: 617-4406

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026