
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Fjölbreytt starf á göngudeild þvagfæra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
03.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026
Hjúkrunarfræðingur - Fjölbreytt starf á göngudeild þvagfæra
Vegna aukinna umsvifa og fjölbreytni í starfsemi göngudeildar þvagfæra óskast hjúkrunarfræðingur til starfa.
Starfsemin einkennist af teymisvinnu, góðum starfsanda, faglegum metnaði og sterkri liðsheild. Göngudeildin er framsækin deild og markvisst er unnið að umbótum og framþróun í starfi. Auk þess eru spennandi verkefni í stafrænni þróun og þróun fjarþjónustu innan dag- og göngudeilda.
Á göngudeild þvagfæra er veitt sérhæfð og fjölbreytt göngudeildarþjónusta við sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum. Við veitum meðferð í nýrnasteinbrjótnum, sinnum þvaglekamóttöku auk þess fara fram ýmsar rannsóknir, greiningar og meðferðir á sjúkdómum í þvagfærum. Aukning er á skurðaðgerðum sem eru að þróast og færast yfir á göngudeildina. Lögð er rík áhersla á ráðgjöf og kennslu utan sem innan Landspítala.
Við tökum vel á móti hjúkrunarfræðingum, reynslumiklum sem og nýútskrifuðum og veitum einstaklingbundna aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Starfshlutfall er samkomulag (70-100%), unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. apríl 2026 eða eftir samkomulagi. Áhugasamir hafi samband við Huldu Pálsdóttur, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu
Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við legudeildir sérgreina
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklinga starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Íslenskukunnátta 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Fjölbreytt starf á göngudeild þvagfæra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
03.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026