Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður í innheimtu
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026
Skrifstofumaður í innheimtu
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum auglýsir laust til umsóknar skrifstofustarf á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ. Um er að ræða heilt stöðugildi og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Embætti sýslumannsins á Suðurnesjum er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun. Áherslur vinnustaðarins byggja á góðri og faglegri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið:
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar öllum kynjum. Það snýr einkum að gjaldkerastörfum og verkefnum á sviði innheimtu og felur í sér almenna afgreiðslu og leiðbeiningar til viðskiptavina á staðnum, í síma og í tölvupósti. Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt og undir álagi, vera talnaglöggur og búa yfir víðsýni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Hæfniskröfur
Hreint sakavottorð.
Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar.
Reynsla af gjaldkera og/eða innheimtustörfum
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og gott vald á ensku og/eða öðru erlendu máli.
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Jákvæðni, traust og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun.
Auga fyrir smáatriðum, öguð og skilvirk vinnubrögð.
Geti unnið undir álagi.
Stundvísi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Sameykis og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr.70/1996.
Sótt er um starfið á Starfatorgi en einnig er unnt að skila umsóknum til Sýslumannsins á Suðurnesjum, Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ á netfangið sudurnes@syslumenn.is
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og starfsferil ásamt kynningarbréfi, þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína til að gegna starfinu.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði.
Reykjanesbæ, 3. mars 2026
Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður í innheimtu
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026