Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir/ vísindamaður - Tímabundið starf í 1 ár í klínískum erfða- og litningarannsóknum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.02.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026

Læknir/ vísindamaður - Tímabundið starf í 1 ár í klínískum erfða- og litningarannsóknum

Laust er til umsóknar starf sérfræðings við erfða- og sameindalæknisfræðideild á rannsóknarsviði Landspítala. Starfs- og ábyrgðarlýsing tekur mið af menntun og hæfni þess sem ráðinn er.

Á erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) fer fram fjölbreytt starfsemi. ESD veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu og hún er eina deildin sinnar tegundir á Íslandi. Á ESD er göngudeild og ráðgjafaeining. Deildin rekur einnig sérhæfðar rannsóknarstofur til að greina erfðasjúkdóma, meta erfðaáhættu og í fósturskimun og nýburaskimun. Notaðar eru margvíslegar rannsóknategundir í lífefnaerfðafræði, sameindaerfðafræði og litningarannsóknum. Erfðamengisrannsóknir eru nýtt og hrattvaxandi svið. Hér erum við að leita að tímabundinni afleysingu á rannsóknarstofum til eins árs, frá 1. apríl 2026.

Á ESD fer fram öflug kennsla, þjálfun og vísindarannsóknir í samvinnu við ýmsa aðila innan og utan spítalans. Deildin er í formlegum tengslum við lífefna- og sameindalíffræðasvið læknadeildar Háskóla Íslands. Akademískar nafnbætur eru mögulegar fyrir umsækjendur með viðeigandi bakgrunn og virkni í vísindarannsóknum.

Vinnuandinn á deildinni einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Unnið er í öflugum þverfaglegum teymum innan og utan deildar og í nánu samstarfi við aðrar starfsemi spítalans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérfræðiumsjón með rannsóknum á ákveðnum sviðum

  • Yfirferð tilfella, svörun rannsókna þ.m.t. túlkun og ráðgjöf tengd þeim

  • Þróun og uppsetning, eftirlit nýrra rannsókna

  • Stefnumótun og þróun þjónustu í samráði við stjórnendur

  • Önnur verkefni sem taka mið af þekkingu og reynslu viðkomandi

  • Ráðgjöf á sínu sérsviði

  • Kennsla og vísindarannsóknir

Hæfniskröfur

  • Almennt lækningaleyfi/ sérfræðiþekking í úrlestri á rannsóknum deildarinnar

  • Sérfræðiþekking í klínískum erfða- og/ eða litningarannsóknum

  • Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við stjórnendur deildarinnar

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Hæfni og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi

  • Reynsla í kennslu- og vísindavinnu er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, vísindi, rannsóknir,

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hans Tómas Björnsson

Tölvupóstur: hanstb@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir/ vísindamaður - Tímabundið starf í 1 ár í klínískum erfða- og litningarannsóknum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.02.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026