
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026
Læknir í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Barna- og unglingageðdeild Landspítala óskar eftir lækni til starfa í nýtt teymi sem er falið að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast neyðarvistunar á Stuðlum.
Starfið heyrir undir barna- og unglingageðlækningar á Landspítala en aðal starfsstöð teymisins verður á barna- og unglingageðdeild, þjónusta verður einnig veitt á öðrum deildum Landspítala og Stuðlum. Möguleiki er á því að starfa samhliða í nýju teymi og öðrum verkefnum innan barna- og unglingageðdeildar.
Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis auk skipulagðrar handleiðslu sérfræðilæknis og reynslumikilla sérnámslækna. Starfsumhverfið er lærdómsmiðað og starfið er fjölbreytt og felur í sér samstarf við aðrar sérgreinar læknisfræðinnar, s.s. barnalækningar og bráðalækningar.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Á deildunum er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Þar starfa um 100 einstaklingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma. Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku starfseininganna. Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu ólíkra starfsstétta með það að markmiði að gera meðferð og þjónustu, framsækna og skilvirka.
Starfinu fylgja bakvaktir en vel er gætt að hvíldartíma starfsfólks á deildinni. Starfshlutfall er 80-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, en upphafsdagur er samkomulagsatriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf í þverfaglegu teymi um heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast innskriftar á neyðarvistun Stuðla
Heilbrigðisþjónusta í samræmi við gagnreynda þekkingu
Þátttaka í þjónustu og gæða- og umbótastarfi á þverfaglegum grundvelli
Samskipti við tengiliði samstarfsstofnana í verkefninu og annarra deilda Landspítala
Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
Áhugi á að bæta sig í faglegu klínísku umhverfi
Brennandi faglegur áhugi á málefnum barna sem glíma við flókinn samsettan vanda og fjölskyldum þeirra
Hæfni til að þróa og aðlaga heilbrigðisþjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda
Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að takast á við krefjandi verkefni
Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, læknir, læknir með lækningaleyfi
Tungumálakunnátta: íslenska 4/5
Staðsetning: Dalbraut, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal
Forstöðuhjúkrunarfræðingur
Tölvupóstur: sigurves@landspitali.is
Sími: 543-4300

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026